Forsíða

Innritun í framhaldsskóla
fyrir haustönn 2013

Forinnritun nemenda í 10. bekk verður 11. mars – 12. apríl

Forinnritun nemenda í 10. bekk (fæddir 1997 eða síðar) hefst mánudaginn 11. mars og lýkur föstudaginn 12. apríl. Nemendur fá bréf frá Námsmatsstofnun með veflykli sem gengur að innritunarvef og leiðbeiningum um umsóknarferlið afhent í grunnskólum sínum. Foreldrar/forráðamenn nemenda fá bréf í pósti frá Námsmatsstofnun með upplýsingum um innritunina. Nemendur í 10. bekk eru eindregið hvattir til að taka þátt í forinnrituninni.

Innritun annarra en 10. bekkinga verður 1. maí til 31. maí

Innritun eldri nemenda (fæddir 1996 eða fyrr) sem ekki eru í framhaldsskóla sem stendur eða ætla að skipta um skóla hefst miðvikudaginn 1. maí og lýkur föstudaginn 31. maí. Umsækjendur 17 ára og eldri nota auðkenni frá island.is, veflykil frá Ríkisskattstjóra eða rafræn skilríki á greiðslukorti. Hægt er að fá afhentan veflykil hjá Ríkisskattstjóra gegn framvísun persónuskilríkja. Ef sótt er um veflykil á netinu er hægt að velja um að fá hann sendan á lögheimili, sem tekur 2-3 virka daga eða í netbanka, sem skilar sér samdægurs. Rafræn persónuskilríki er hægt að sækja um hjá viðskiptabanka.

Lokainnritun nemenda í 10. bekk verður 4. maí til 10. júní

Nemendur í 10. bekk hafa frest til að sækja um nám í framhaldsskóla eða breyta umsóknum úr forinnritun til miðnættis mánudaginn 10. júní. Einkunnir þeirra verða sendar rafrænt frá grunnskólum til framhaldsskóla eftir skólaslit.

Starfsbrautir fyrir fatlaða

Rafrænni innritun á starfsbrautir lauk 28. febrúar síðastliðinn. Þeir sem ekki hafa þegar sótt um geta þó sent viðkomandi framhaldsskóla skriflega umsókn til 1. apríl næstkomandi. Stefnt er að afgreiðslu allra umsókna á starfsbrautir fyrir lok apríl.

Fjar- og dreifnám og nám í kvöldskóla

Innritun í fjar- og dreifnám og í kvöldskóla fer fram samkvæmt fyrirkomulagi sem einstakir framhaldsskólar auglýsa.

Nánari upplýsingar eru veittar síma 550 2400 eða með því að senda póst á innritun@namsmat.is