Framhaldsskólar
Nám að loknum grunnskóla
isenruesplvnthsrlt

Framhaldsskólanám

Námsleiðir

Almennt nám Listnám Nám fyrir fatlaða Starfsnám Stúdentsnám

Skólar

Inntökuskilyrði

á námsbrautir framhaldsskóla

Nemendur sem hafa lokið skyldunámi í samræmi við ákvæði aðalnámskrár grunnskóla geta innritast á brautir framhaldsskóla. Inntökuskilyrði á einstakar brautir eru:

Almennt nám
Almenn braut er opin öllum nemendum. Þeir sem hafa náð framhaldsskólaaldri en hafa ekki lokið grunnskólaprófi eiga kost á að hefja nám á almennri námsbraut.

Stúdentsnám og listnám
Framhaldsskólar semja við mennta- og menningarmálaráðuneytið um námsframboð sitt og í þeim samningi er kveðið á um inntökuskilyrði á hverja braut. Þau eru birt á vefsíðu hvers skóla.

Nám fyrir fatlaða
Er einkum ætlað:



  • fötluðum nemendum sbr. 2. gr. laga nr. 59/1992 um málefni fatlaðra sem hafa verið í sérdeildum eða sérskólum og/eða fengið námsmat skv. 48. gr. laga um grunnskóla nr. 66/1995 og hafa ekki forsendur til þess að stunda nám á öðrum námsbrautum framhaldsskólans.

  • þroskaheftum og fjölfötluðum nemendum sem hafa fengið námsmat samkvæmt 48 gr. laga um grunnskóla nr. 66/1995.



Starfsnám
Framhaldsskólar og mennta- og menningarmálaráðuneytið semja um hvaða brautir hver skóli býður upp á og hvaða inntökuskilyrði eru á hverja braut. Þau eru birt á vefsíðu hvers skóla.


Skólameistara er heimilt að veita nemendum, sem hafa náð 18 ára aldri, inngöngu á einstakar brautir framhaldsskóla þótt þeir uppfylli ekki lágmarkskröfur um námsárangur við lok grunnskóla.



Bookmark and Share
Mennta- og menningarmálaráðuneyti - Sölvhólsgötu 4 - 150 Reykjavík
Sími: 545 9500 - Bréfasími: 562 3068 - Kt.: 460269-2969 - Netfang: - Fyrirspurnir