Forsíða
Forsíða
Leikskóla
Grunnskóla
Framhaldsskóla
Tónlistarskóla
Símenntun
Viðurkenningu á námi
Málefni fatlaðra
Á döfinni
Styrki
Erlend samskipti
Fréttir
Sérverkefni MRN
Stafrænt námsefni
Vísindi
Samfélag/Community
ISLOM
Tungumálamöppur
Sjávarútvegur
Borgaravitund, lýðræði
Vatn
menntagatt.is
The Educational Gateway

Hér er að finna upplýsingar um verkefni sem eru á vegum menntamálaráðuneytisins og Menntagátt kemur að með einum eða öðrum hætti.

  Verkefni i vinnslu

  Samfélög
Vinnuhópar á vegum Menntamálaráðuneytisins og/eða Menntagáttar hafa hér aðgang að samfélagi á netinu. Einungis þeir sem hafa fengið úthlutað þar til gerðu lykilorði komast inn í samfélögin, forsíðan er þó opin öllum.

  Upplýsingar um stafrænt námsefni sem styrkt hefur verið af menntamálaráðuneytinu
Á árinu 2006 veitti ráðuneytið 16 styrki til gerðar stafræns, gagnvirks námsefnis sem skyldi vera aðgengilegt á Netinu. Upplýsingar um verkefni sem hlutu styrki er að finna hér á vefnum en Menntagátt annast ýmsa umsýslu í tengslum við styrkveitinguna.

  Vísindi á Menntagátt
Með styrk frá menntamálaráðuneytinu hafa verið settar upp vefsíður til stuðnings raungreinakennslu. Þar er vísað á efni sem ætti að vera áhugavert fyrir raungreinakennara að kynna sér.

  Áræði með ábyrgð
Áræði með ábyrgð er heiti á stefnu menntamálaráðuneytisins um upplýsingatækni í menntun, menningu og vísindum 2005-2008. Framtíðarsýnin sem sett er fram í stefnunni spannar vítt svið menntunar, menningar og vísinda og felur í sér að allir fái tækifæri til að tileinka sér nauðsynlega færni og taka þátt í upplýsingasamfélaginu á eigin forsendum.  Stefnuna má lesa í heild sinni á vef menntamálaráðuneytisins.

Einnig er rétt að benda á útgefið rit, Menntamálaráðuneytið - Menning, menntun og vísindi. Ritið er einnig er aðgengilegt á vef ráðuneytisins en í því er fjallað um ráðuneytið og þá málaflokka sem heyra undir það.

 

  Eldra efni

  Vatn
Ísland hefur frumkvæði að norrænu verkefni
 um mikilvægi neysluvatns. Tíu grunnskólar þátt í verkefninu, tveir frá hverju Norðurlandanna fimm.  Nemendur munu haustið 2005 vinna ýmis verkefni sem tengjast neysluvatni. Verkefnið leggur m.a. áherslu á að nemendur nýti upplýsingatækni. Norræna ráðherranefndin styrkir verkefnið fjárhagslega en verkefnastjórn er á Íslandi þar sem ráðuneyti menntamála og umhverfismála átti frumkvæði að verkefninu.

  Evrópuár um borgaravitund og lýðræði í skólastarfi 2005 
Evrópuráðið tilnefndi árið 2005 „Ár borgaravitundar og lýðræðis í skólastarfi“. Menntamálaráðuneytið tók þátt í verkefninu.
Markmiðið var að vekja til umhugsunar um hlutverk og mikilvægi menntunar til að efla lýðræðisvitund ungmenna í skóla- og félagsstarfi, stuðla að gagnrýnni og sjálfstæðri hugsun, umburðarlyndi og virðingu fyrir náunganum.

  Samkeppni í grunnskólum um sjávarútvegsvef 
Sjávarútvegsráðuneytið og menntamálaráðuneytið stóðu fyrir samkeppni 2005 meðal grunnskóla landsins um verkefni sem bar yfirskriftina Sjávarútvegur í fortíð, nútíð og framtíð í tilefni af því að 100 ár voru frá því að fyrsti íslenski togarinn, Coot, kom til heimahafnar í Hafnarfirði.

  Námskeið í dreifmenntun
Menntamálaráðuneytið hefur staðið að námskeiðum í upplýsingatækni og dreifmenntun fyrir kennara í framhaldsskólum.  Hér á Menntagátt er efni frá námskeiðunum

  Þróunarstarf - Minnisbók
Í október 2002 gaf menntamálaráðuneytið út smárit sem nefnist Minnisbók.  Þar er að finna upplýsingar um verkefni sem hafa eða er verið að vinna í ráðaneytinu og tengjast upplýsingatækni í menntun og menningu.  Efni Minnisbókarinnar má finna hér - Þróunarstarf.

 Fjölbrautaskóli Snæfellinga 
Undirbúningur að stofnun framhaldsskóla á norðanverðu Snæfellsnesi hófst í lok mars 2003, kennsla byrjaði haustið 2004.  Skólinn hlaut nafnið Fjölbrautaskóli Snæfellinga.  Hér eru vefsíður sem veita upplýsingar um undirbúning að stofnun skólans en vefur skólans er á slóðinni fsn.is.

 

 

 

 

Leita að efni
Skrá efni
 
  Nýtt efni  

Skaftáreldar og móðuharðindin
Stúfur 3
Íslenskur vefur um tilvitnanir orðtök málshætti og spakmæli
SÞ - málefni Afríku
Kennsla nemenda með ólíkan menningarlegan bakgrunn

     
  Vinsælast  

Passíusálmar
rasmus.is - Stærðfræðivefurinn
Algerbruvefur
Fréttir, menning og fleira í Mexíkó
Aðdáendur Þýskalands

     
   


1931 | Brot úr sögu
Lög um notkun bifreiða staðfest

1987 | Tækni og framfarir
Fimmtíu króna mynt sett í umferð

     
"); }