Forsíða
Forsíða
Leikskóla
Grunnskóla
Framhaldsskóla
Tónlistarskóla
Símenntun
Viðurkenningu á námi
Málefni fatlaðra
Á döfinni
Styrki
Erlend samskipti
Fréttir
Sérverkefni MRN
menntagatt.is
The Educational Gateway
   Velkomin(n) á umræðuþing     
  • Hægt er að skoða umræður á þinginu án lykilorðs
  • Til að taka þátt í umræðum á þinginu verða notendur hafa skráð sig með nýskráningu
  • Við nýskráningu verður lykilorð sent í pósti til lögheimilis þátttakanda samkvæmt þjóðskrá
  •  

    Nýskrá Gleymt lykilorð

    Sláðu inn kennitöluna þína og netfangið (tölvupóstfang) sem þú vilt nota sem notendanafn.
    Kennitala:
    Netfang:  
       

    Fara á umræðuþing. Smelltu hér.

    Breytt námsskipan til stúdentsprófs
    Út er komin skýrslan Breytt námsskipan til stúdentsprófs – aukin samfella í skólastarfi. Skýrslan var unnin af starfshópum og verkefnisstjórn sem höfðu m.a. það hlutverk að setja fram tillögu um breytta námsskipan til stúdentsprófs og meta fjárhagsleg áhrif svo og áhrif hennar á starfsfólk skóla.

    Eitt af markmiðunum með styttingu námstíma til stúdentsprófs er að gera íslenskum ungmennum kleift að ljúka framhaldsskólanámi á sambærilegum tíma og jafnaldrar þeirra í nágrannaríkjunum án þess að slakað sé á þeim kröfum sem gerðar eru til stúdentsprófsins. Þar með væri starfsævi þeirra jafnframt lengd um eitt ár. Með þeirri breyttu námsskipan sem nú hafa verið lögð drög að er hins vegar ekki einblínt á styttingu námstímans heldur stefnt að því að efla og bæta það starf sem fram fer í leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla.

    Jafnframt hefur verið haft að leiðarljósi að ekki megi draga um of úr þeim sveigjanleika sem nú einkennir framhaldsskólanámið. Mikil fjölbreytni er í námsvali á háskólastigi og því mikilvægt að nemendur geti undirbúið sig með ákveðið háskólanám í huga. Þannig verður áfram gert ráð fyrir sömu hlutföllum á milli kjarna, kjörsviðs og vals og er í núverandi kerfi. Nú ljúka flestir framhaldsskólanemendur stúdentsnámi á fjórum árum þótt meðalnámstíminn sé lengri. Með þeim breytingum sem verið er að boða yrði nemendum auðveldað að ljúka stúdentsnámi á þremur árum og meðalnámstíminn styttist.

         Skjöl á vefnum sem varða styttingu námstíma til stúdentsprófs     

     

    Breytt námsskipan til stúdentsprófs - aukin samfella í skólastarfi : skýrsla starfshópa og verkefnisstjórnar
    (skýrsla á PDF-formi á vef menntamálaráðuneytisins)

    PDF icon

    Áfangaskýrsla um styttingu námstíma til stúdentsprófs. (eingöngu á PDF-formi) PDF icon

     

    Skoða skýrsluna ,,Stytting námstíma til stúdentsprófs" .
    Smelltu hér

    PDF icon

    Skoða og prenta skýrslu
    (PDF- formi - 400Kb)

     

     PDF icon

    Smáritið ,,Stytting námstíma til stúdentsprófs"
         

    Ná í Acrobat reader,
    smelltu hér
       

     

     

     

    "); }